Fjölfókuslinsur
Ein af merkilegri nýjungum á síðari árum er tilkoma gervilinsa sem leyfa viðkomandi að lesa stærra letur án hjálpar lesgleraugna, svokallaðar leslinsur. Slíkar linsur má setja inn í augu eftir hefðbundna augasteinsaðgerð. Leslinsurnar hjálpa til við lestur, þar sem lesstyrk er komið fyrir utan við miðju linsunnar og getur einstaklingurinn því lesið stærra letur án gleraugna, t.d. af matseðli, á vöru úr kjörbúð og jafnvel smærra letur.