Augasteinsaðgerðir
Sjá nýja frétt á Mbl.is - Biðlistar heyra sögunni til.
Með tilkomu nýrrar og fullkominnar augnskurðstofu bjóðum við upp á svokallaðar augasteinsaðgerðir. Þeim má skipta í tvennt, annars vegar sjónlagsaðgerðir og hins vegar augasteinsaðgerðir vegna skýs á augasteini:

Annars vegar eru aðgerðir sem miða að því að laga sjónlagsgalla, eins og mikla nærsýni og fjarsýni. Í því tilviki er sett inn örþunn linsa, svokölluð ICL linsa, á bak við lithimnu og fyrir framan augasteininn. Þessi linsa er ekki ólík venjulegri snertilinsu, nema hvað hún er sett inn í augað í gegnum örlítið (3mm) snið á auganu.
Þverskurður af auga - ICL linsan liggur fyrir aftan lithimnuna (þessi bláa/brúna) og fyrir framan augasteininn.
Þessar aðgerðir hafa ekki verið framkvæmdar hér á landi áður, en í fjölmörg ár í löndunum í kringum okkur með mjög góðum árangri. Líkt og áður segir er aðgerðin fyrst og fremst framkvæmd á einstaklingum með mikla fjarsýni eða nærsýni sem hafa ekki reynst hæfir í laseraðgerð. Þessi aðferð getur líka hentað þeim vel sem komast ekki í laseraðgerð vegna of þess að hornhimna er of þunn. Aðgerðin hentar þó ekki öllum og þarf nákvæma forskoðun til að ganga úr skugga um hvort viðkomandi er hæfur í innsetningu á ICL-linsum. Hér má sjá innsetningu á slíkri linsu:
Smellið hér
 |
 |
ICL-linsa - mikið stækkuð.
ICL - linsan er örþunn - mun þynnri en
venjuleg mjúk kontaktlinsa
|
ICL - linsa - á þessari mynd má fá nokkra hugmynd
um hversu agnarsmá hún
er þar í samanburði við
odd smárrar flísatangar
|
2. Augasteinsaðgerðir vegna skýs á augasteini (smellið hér fyrir nánari upplýsingar)
Aðgerðir þessar eru algengustu aðgerðir sem framkvæmdar eru hér á landi en hafa hingað til eingöngu verið framkvæmdar á spítalastofnunum. Biðlistar í þessar aðgerðir hafa verið langir og eru dæmi þess að fólk hafi þurft að bíða í 2 ár eftir slíkri aðgerð. Nú hefur orðið breyting á, en í maí 2008 var undirritaður tímamótasamningur á milli Sjónlags og TR um framkvæmd 800 slíkra aðgerða á tveimur árum. Þetta er mikil framför í heilbrigðismálum hér á landi og mun hjálpa til við að útrýma biðlistanum.
Ský á augasteini nefnist "cataract" á erlendri tungu og veldur sjóndepru á sama hátt og óhrein bílrúða. Augasteinninn okkar er tær framan af ævi en getur, jafnvel á fremur skömmum tíma, orðið ógegnsær og hindrað að myndin komist skýr og skörp inn í augað. Aðgerðin er fremur einföld og tekur einungis 10-15 mínútur. Við framkvæmum þessa aðgerð á nýrri skurðstofu okkar. Aðgerðin er framkvæmd í augndropadeyfingu.
Aðgerð vegna skýs á augasteini.

Á þessari mynd sést hvernig augasteinninn er mulinn niður með hljóðbylgjum og sogaður burt um leið.
Ein af merkilegri nýjungum á síðari árum er tilkoma gervilinsa sem leyfa viðkomandi að lesa stærra letur án hjálpar lesgleraugna, svokallaðar margbrotnar linsur, eða fjölfókuslinsur (multifocal lenses). Þessar linsur hafa átt vaxandi vinsældum að fagna, bæði austan og vestanhafs, ekki síst vegna þess að hefðbundnar gervilinsur bæta einungis fjarlægðarsjón, en ekki lessjón. Því þarf einstaklingur sem fær slíkar gervilinsur að nota lesgleraugu við flest allt nálægt, þar á meðal tölvur. Margbrotnu linsurnar hjálpa til við lestur, þar sem

lesstyrk er komið fyrir utan við miðju linsunnar og getur einstaklingurinn því lesið stærra letur án gleraugna, t.d. af matseðli, á vöru úr kjörbúð og jafnvel smærra letur.
Margbrotin linsa (fjölfókuslinsa) - takið eftir hringjunum þar sem lesstyrkur eykst eftir því sem utar dregur.