-A +A Sjónskert Veftré

Laseraðgerð - LASIK


LASIK aðgerðin er nú langalgengasta aðgerðin sem framkvæmd er við flestum gerðum nærsýni, fjarsýni og sjónskekkju. Gerðar hafa verið þúsundir slíkra aðgerða hér á landi með mjög góðum árangri. Nýleg rannsókn sem framkvæmd var á árangri aðgerða við nærsýni hér í Sjónlagi sýndu fram á að einu ári eftir aðgerð eru 98% sjúklinga óháðir gleraugum, sem er afar góður árangur. Aðrar gerðir laseraðgerða, eins og PRK, LASEK, Epi-LASIK og sjöttukynslóðar LASIK eru framkvæmdar eftir þörfum hvers og eins. Komin er upp undir 20 ára reynsla á þessar aðgerðir og er árangur þeirra mjög stöðugur. LASIK aðgerðin er orðin ein algengasta aðgerð heims, um 4 milljónir slíkra aðgerða eru gerðar í heiminum á ári hverju.

Líkt og flestar sjónlagsaðgerðir felst LASIK í því að breyta lögun hornhimnunnar og breyta þar með hæfni hennar til að brjóta ljós. Hornhimna í nærsýni er gerð flatari til að hún brjóti ljós minna. Hornhimna í fjarsýni er gerð kúptari, til að hún brjóti ljós í ríkari mæli.

LASIK aðgerðin er nú langalgengasta aðgerð sem framkvæmd er við flestum gerðum nærsýni, fjarsýni og sjónskekkju. Sjá nánar um mismunandi sjónlag.

OG HVAÐ ÞÝÐIR SVO ORÐIÐ LASIK?
LASER ASSISTED IN SITU KERATOMILEUSIS (LASIK)

  • Laser Assisted: Aðgerð framkvæmd með laser
  • In situ: Staðbundin
  • Kerato-: Hornhimna
  • Mileusis: Breyting á lögun


Mynd 1 sýnir fyrsta stig LASIK aðgerðar sem felst í því að útbúa flipa með svokallaðri flipavél.

Mynd 2 sýnir augað eftir að flipinn hefur verið gerður. Flipinn er fastur á einum stað á einskonar hjörum og er lagður til hliðar áður en lasermeðferðinni er beitt.

Mynd 3 sýnir hvernig laserinn fjarlægir síðan fyrirfram ákveðna þykkt úr hornhimnunni.

Mynd 4 sýnir eftir að flipinn hefur verið settur á sinn stað aftur. Flipinn festist sjálfkrafa á hornhimnuna innan fimm mínútna án þess að saumar séu notaðir.

Vinsældir LASIK byggjast meðal annars á því hversu hratt tekur jafnan að ná tilætlaðri sjónskerpu eftir aðgerð. Lengri tíma tekur að jafna sig eftir aðrar gerðir laserinaðgerða, líkt og LASEK og PRK. Tvær síðarnefndu gerðir laseraugnlækninga eru einungis notaðar í undantekningartilfellum þar sem ekki er unnt að beita LASIK. Árangur þeirra er engu að síður afar góður.

Að lokinni aðgerð eru bólgueyðandi dropar og sýklalyfjadropar gefnir í 4 daga. Þar sem öll augu verða svolítið þurr (misjafnt eftir aðgerðum og einstaklingum) er nauðsynlegt að nota svokölluð gervitár í a.m.k. nokkrar vikur eftir aðgerð. Við fylgjum þér hins vegar vel eftir og göngum úr skugga um að allt hafi gengið vel fyrir sig.





Kristján Þór Gunnarsson, læknanemi við Háskóla Íslands, framkvæmdi rannsókn á ánægju fólksins okkar eftir LASIK-aðgerð við nærsýni.

Smellið á: Grein.pdf

(ritgerð birt með góðfúslegu leyfi höfundar)

Þessi rannsókn markar nokkur tímamót, þar sem hún er sú fyrsta sem framkvæmd er hér á landi. Niðurstöður hennar sýna að árangur laseraðgerða á Íslandi er einn sá albesti sem greint hefur verið frá. Sem dæmi má nefna að í könnuninni fengu 97,5% augna 6/6 sjón eða betri án glers eftir aðgerð og 100% 6/12 sjón eða betri. Allir sjúklingar í rannsóknarhópnum, 50 talsins, myndu mæla með aðgerðinni við vini og ættingja.

© 2009 Sjónlag  -  Glæsibær  -  Álfheimar 74  - 104 Reykjavík  -  Sími 577 1001 - Opið kl. 8:30-16:00 virka daga
Keyrir á Dísil frá Atómstöðinni