Mundu vel: Vertu án snertilinsa í a.m.k. 1 viku fyrir forskoðun!
1. Forskoðun

Fyrsta skrefið er eitt það mikilvægasta: Panta tíma í forskoðun. Þú hringir í síma
577 1001 og færð tíma hjá Jóhannesi eða Ólafi. Við leitumst við að gefa tíma sem fyrst, oftast
innan tveggja vikna. Forskoðunin kostar rétt yfir kr. 6000.- og verður áreiðanlega nákvæmasta augnskoðun sem þú hefur nokkru sinni farið í.
Fyrst tekur
Halla á móti þér af sinni rómuðu kurteisi. Kaffið okkar er engu líkt og við látum þér líða eins notalega og hægt er. Við reynum að láta biðina vera sem stysta en bendum fólki jafnframt á að hver og einn skjólstæðingur fær þann tíma sem hann þarf, svo stundum getur orðið nokkur bið. Forskoðun er nákvæmasta augnskoðun sem þú hefur nokkru sinni farið í. Nú eru tvö teymi í laseraugnlækningunum í Sjónlagi sem munu fylgja þér alla leið frá forskoðun þangað til að útskrift kemur. Annað teymið samanstendur af
Jóhannesi Kára Kristinssyni og
Maríu Aldísi Kristinsdóttur - hitt teymið samanstendur af
Ólafi Má Björnssyni og
Maríu Bóel Gylfadóttur.
María Aldís eða María Bóel kalla síðan í þig í sjónmælingu, sem verður framkvæmd allt að þrisvar á meðan þú ert hjá okkur.
Þær mæla sjónina annars vegar í svokölluðum sjónlagsmæli til að fá grófa hugmynd um sjónlag þitt. Síðan er unnið út frá því og gleraugun jafnframt mæld. Ásamt þessu er farið yfir heilsufar þitt, augnsögu, ofnæmissögu og annað sem gæti haft áhrif á aðgerð. Augnþrýstingur er síðan mældur.
Að þessu loknu er hornhimnan skoðuð nánar með sérstöku mælitæki og einskonar landslagsmynd útbúin af yfirborði hornhimnunnar. Einnig er þykkt hennar mæld með sérstökum hornhimnuþykktarmæli. Meðalþykkt hornhimnu hér á landi er í kringum 540 míkron, sem er aðeins rúmlega hálfur millimetri. Að þessu loknu eru sjáöldur þín mæld (svörtu "augasteinarnir") með millimetramáli og ríkjandi augað þitt ákvarðað. Ríkjandi augað er það auga sem þú notar ávallt þegar þú ert að taka myndir. Við getum komist að því með einföldu prófi. Síðan eru sjáöldrin víkkuð út með sérstökum dropum, en það tekur 15-20 mínútur.

Að því loknu er komið að nákvæmri augnskoðun hjá augnlækninum þínum. Við skoðum augun nákvæmlega með svokölluðum raufarlampa sem er einskonar smásjá. Við mælum sjónina líka ávallt á ný til að fullvissa okkur um að allar tölur séu réttar. Við förum síðan yfir alla rannsóknina frá upphafi til enda og ræðum möguleika til aðgerðar. Ef minnsti vafi leikur á að þú sért heppileg/ur í aðgerð ræðum við það atriði og ráðleggjum þér frá því að fara í aðgerð og velja fremur gleraugu og/eða snertilinsur. Við höfnum u.þ.b. 30% og þykjum kröfuhörð. Við erum stolt af því - líkt og við erum stolt af árangri okkar í laseraðgerðum, sem er með því besta sem greint hefur verið frá í viðurkenndum ritrýndum tímaritum. Lykilatriði í því er að velja sjúklinga gaumgæfilega í aðgerð. Við ræðum möguleikana á "skiptisjón", þar sem við skiljum eftir eða búum til svolítinn "mínus" á víkjandi auganu þínu til að eiga til góða við lestur stærra leturs í framtíðinni. Ríkjandi augað meðhöndlum við nánast alltaf að fullu - þ.e. stefnum á "núllið". Við hvetjum þig til að skrifa spurningar niður fyrirfram og spyrja okkur um öll vafaatriði sem geta komið upp í hugann. Að því loknu er ekkert eftir nema að panta tíma í aðgerð!
2. Aðgerðin sjálf

Jæja, nú er komið að því! Þú þarft að vera án snertilinsa í a.m.k. 1 viku fyrir aðgerð. Ekkert þarf að fasta fyrir þessa aðgerð, en þú þarft að fá einhvern til að keyra þig heim eftir aðgerð, eða taka leigubíl. Þetta er aðallega sökum róandi lyfja sem þú færð fyrir aðgerð. Þú þarft að ganga frá greiðslu fyrir aðgerð og skrifar undir upplýst samþykki fyrir aðgerð. Þú mátt vera með einn aðstandanda inni á meðan á aðgerð stendur. Við gerum allt til að létta andrúmsloftið fyrir aðgerð og meðan á henni stendur. Fólk talar oftast um að þetta sé miklu minna mál en það hélt, meira að segja tannlæknar segja sjálfir að þetta sé minna mál en að fara til tannlæknis! Þú bíður í biðstofunni eftir að róandi lyfin hafi áhrif og við förum vandlega yfir það sem búast má við eftir aðgerð, þau lyf sem þú þarft að taka (augndropar sem þú færð lyfseðil fyrir og leysir út í apóteki að lokinni aðgerð), við ræðum líka um nauðsyn þess að nota gervitár og nudda ekki augun og sýnum þér gleraugun sem þú kemur til með að sofa með í fjórar nætur að lokinni aðgerð.

Að því loknu er komið að stóru stundinni. Eftir að hreinsað hefur verið létt í kringum augun með joðlausn kemurðu með okkur inn á laserherbergi. Gefnir eru staðdeyfandi augndropar fyrir aðgerðina. Við pössum vel upp á að deyfa augað vel þannig að þú finnir lítið sem ekkert fyrir aðgerðinni. Aðeins annað augað er meðhöndlað í einu.
Augað sem er meðhöndlað er haldið opnu með augnsperru, svo að engin hætta er á að viðkomandi loki augunum á meðan aðgerð stendur.
Lítið ljós í lasertækinu hjálpar til að halda auganu stöðugu með því að líta í það allan tímann. Á lasernum er líka svokallaður fylgigeisli, sem skoðar augað 60 sinnum á sekúndu (60Hz) og fylgir því eftir hvert sem það fer svo að lasergeislinn sjálfur fer alltaf á réttan stað á hornhimnunni, jafnvel þótt augað hreyfist ögn. Fylgjast má einnig með aðgerðinni á skjá sem er yfir lasertækinu og getur aðstandandi horft á og fylgst með úr stúkusæti allan tímann.

Í LASIK er búinn til hlífðarflipi fyrst með sérstakri flipavél. Vegna deyfidropanna fylgir þessu enginn sársauki. Að því loknu er flipinn lagður til hliðar og lasermeðferð gefin á hornhimnubeðinn.
Lasermeðferðin tekur yfirleitt mjög skamman tíma, í flestum tilvikum er henni lokið á innan við mínútu. Flipavélin og lasertækið geta verið svolítið hávaðasöm og segjum við þér frá óhljóðunum áður en þau koma! Við röbbum um daginn og veginn og reynum að leiða athyglina frá aðgerðinni eftir bestu getu. Ef þú vilt fá útskýringar á því sem við erum að gera er það líka alveg sjálfsagt mál. Við erum sveigjanleg og mestu máli skiptir að við hugsum vel um það dýrmætasta sem þú átt: Augun þín. Við höfum haft á orði að enn þykir okkur hver aðgerð lítið kraftaverk.
Við lasermeðferðina finnur þú skrýtna lykt sem líkist því þegar verið er að brenna hár yfir kertisloga. Þarna er þó enginn bruni á ferðinni, þar sem laserinn er það sem kallað er kaldur laser. Þetta er einungis lykt sem kemur við að lífræn efnasambönd rofna.
Eftir lasermeðferðina er flipinn lagður á aftur, augnsperra fjarlægð – aðgerðin er búin! Nú færðu að sjá klukkuna á veggnum á ný og segir okkur hvað klukkan er!

Að lokinni aðgerð eru augun skoðuð vandlega til að athuga hvort fliparnir sitji ekki vel og allt líti vel út. Að því loknu setur þú á þig sólgleraugun til að hlífa augunum þar til þú ferð heim, færð lyfseðil fyrir dropunum. Við mælum með því að þú leggir þig þegar heim kemur í 1-2 klukkutíma og hafir það rólegt aðgerðardaginn og daginn eftir. Flestir geta keyrt til okkar í skoðun daginn eftir og farið til vinnu 2 dögum eftir aðgerð.
3. Eftirmeðferð í a.m.k. 6 mánuði
Eins og áður segir skoðum við þig daginn eftir aðgerð - það er mikilvægasta skoðunin. Við skoðum augun síðan aftur 2 vikum síðar, 3 mánuðum síðar og svo loks eftir 6 mánuði. Ef einhverjar sveiflur eru enn eða eitthvað sem við þurfum að fylgjast með munum við fylgjast með þér lengur. Ef þörf er á "fíníseringu" á augunum getum við oftast lyft flipanum og framkvæmt lasermeðferð þar undir - flestum finnst þetta mun minna mál en upphaflega aðgerðin, sem var lítið mál hvort sem er.

Við leggjum áherslu á góða og persónulega þjónustu. Við segjum oft að fólk losni ekki við okkur fyrr en það er orðið ánægt og gerum við allt sem í okkar valdi stendur til að svo geti orðið. Við erum ánægð og þakklát fyrir að þú valdir okkur til að hjálpa til við þetta kraftaverk sem þessi aðgerð er. Við gerum allt til að standa undir þínum væntingum - við viljum vera sérfræðingar í þínum augum.