-A +A Sjónskert Veftré


Aldurstengd fjarsýni (presbyopia)

Með aldrinum minnkar hæfileiki augasteinsins til að breyta um lögun (eins og myndavél með sjálfvirkan "fókus") með tímanum (verður líkt og myndavél með fastan "fókus"). Á þennan hátt minnkar hæfileikinn til að fókusera á hluti sem eru nálægt manni og í leiðinni minnkar lesgetan. Þessi hörðnun á sér stað hjá öllum með aldrinum en algengast er að einkenna verði vart upp úr fertugu. Fyrsta einkennið er að halda þarf hlutum (t.d. bókinni) frá sér til þess að sjá skýrar en síðan kemur kemur að því að það dugar ekki til. Hvað er til ráða?

Lesgleraugu

Þeir sem ekki hafa áður þurft að nota gleraugu geta notað lesgleraugu. Sumum dugar að kaupa ódýr lesgleraugu í verslun en til þess að ná bestu mögulegu lessjón þarf oft að láta mæla fyrir lesgleraugum af augnlækni eða sjóntækjafræðingi.

Lagskipt / Varilux gleraugu (gleraugu með lespunkti)

Þeir sem hafa áður þurft að nota gleraugu vegna sjónlagsgalla (t.d. nærsýni, fjarsýni eða sjónskekkju) kjósa oft að geta bæði horft frá sér og lesið með sömu gleraugunum. Lagskipt gleraugu eða svokölluð varilux gleraugu (stiglaus breyting yfir í leshluta) henta þeim því oft vel.

Leslinsur

Ein af merkilegri nýjungum á síðari árum er tilkoma gerviaugasteina sem gera sjúklingum kleift að sjá bæði vel frá sér og nálægt sér (t.d. lestur) án gleraugna.
Rannsóknir sýna að um það bil 8 af hverjum 10 sjúklingum sem fá þessar tegundir gerviaugasteina nota aldrei gleraugu. Þessar linsur hafa átt vaxandi vinsældum að fagna, bæði austan og vestanhafs. Augasteinninn er þá fjarlægður (clear lens extraction) við skurðaðgerð sambærilegri og við ský á augasteini og settur gerviaugasteinn með lesfókus. Við bjóðum sjúklingum okkar upp á þennan spennandi valkost til að losna við gleraugun.

Skiptisjón (monovision)

Sumir snertilinsunotendur kannast við að nota snertilinsu aðeins öðru megin en lesa án linsunnar hinumegin. Þeir nota því annað augað við að horfa á hluti fjarri sér en hitt til að lesa o.þ.h. nærri sér. Iðulega er ríkjandi auga (það auga sem við notum meir, s.s. við að skjóta í mark) leiðrétt fyrir fjarlægð en hitt augað fyrir nálægð. Þetta er kallað skiptisjón og hentar mörgum einstaklingum en ekki öllum. Sumum finnst óþægilegt að skipta yfir á þennan hátt og sjá óskýrt fjarri sér með víkjandi auganu. Afbrigði af þessu er kallað hlutaskiptisjón (partial monovision), en þá er ríkjandi augað leiðrétt að fullu, en hitt augað að hluta til. Í þessu tilviki sér viðkomandi örlítið óskýrt í fjarlægð með víkjandi auganu en getur lesið stærra letur nærri sér. Þetta fyrirkomulag getur tafið fyrir því að nota lesgleraugu um nokkur ár og er oft góð málamiðlun.

Auk snertilinsa er hægt að fá fram skiptisjón með LASIK aðgerð, ICLTM linsum og augasteinsskiptum (clear lens extraction).
© 2009 Sjónlag  -  Glæsibær  -  Álfheimar 74  - 104 Reykjavík  -  Sími 577 1001 - Opið kl. 8:30-16:00 virka daga
Keyrir á Dísil frá Atómstöðinni