-A +A Sjónskert Veftré

Í starfi mínu sem matreiðslumeistari er maður mikið í kringum gufu og fitu, ekki alveg það þægilegasta þegar að maður er með gleraugu. Það var ekki sjaldan sem að maður sá lítið fyrir móðu á gleraugunum og fitubrák sem að lagðist á gleraugun. Eftir svolitla umhugsun ákvað ég að skella mér í laseraðgerð til að losna við gleraugun, ég var svolítið skeptískur í byrjun en því meira sem að maður skoðaði þetta og heyrði reynslusögur annarra varð þetta meira spennandi kostur.

Aðgerðin sjálf var miklu „einfaldari“ og „þægilegri“ en að maður bjóst við, það kom mér á óvart að maður fann eiginlega minna fyrir þessu en að láta gera við tönn hjá tannlækni. Öll þjónusta allt frá því að ég kom fyrst í forskoðun, í kringum aðgerðina og eftirfylgnin eftir aðgerð var frábær, allt gekk eins og maður vill að það gangi, gott og faglegt viðmót mætti manni alla leið í gegn um þetta allt.

Ég gef því Sjónlagi mín bestu meðmæli. Takk kærlega fyrir mig.

Róbert Egilsson

Matreiðslumeistari og nemi í markaðsfræði

Ég hafði verið að velta þessu fyrir mér lengi að koma í laseraðgerðina en ekki farið vegna þess að mér fannst þetta vera svo mikil aðgerð. En ákvað síðan að drífa mig eftir að systir mín fór í aðgerð hjá Sjónlagi og sé sko ekki eftir því.

Þessi aðgerð hefur gjörbreytt lífi mínu, öll þessi litlu atriði sem voru að angra mann en maður lét sig hafa eru farin fyrir bí eins og að fara í sund og sjá ekki neitt og vakna á nóttunni og byrja á því að leita af gleraugunum á náttborðinu. Öll þjónusta var mjög góð hjá Sjónlagi og hugsað vel um mann bæði fyrir og eftir aðgerðina . Aðgerðin sjálf tók mjög stuttan tíma og ég var mjög fljót að jafna mig og í dag sé ég 100% í fyrsta skipti á ævinni.
Bestu kveðjur

Arndís Gísladóttir

Myndlistarmaður og nemi

Ég var búin að hugsa um að fara í laseraðgerð í mörg. Ég væri bæði hrædd við þessar aðgerðir og vildi sjá hver reynslan yrði af þeim.

Mér fannst slæmt að nota gleraugu þegar ég fór í sund, á skíði og í ræktina. Ég gat ekki notað linsur og því hefur aðgerðin veitt mér frelsi sem er mér ómetanlegt.

Herdís Elín Jónsdóttir

Bs ferðamálafræðingur hjá Flugfélagi Íslands

Það er allt jákvætt við að hafa farið í aðgerðina. Breyting fólst aðallega í fresli til útivistar og líkamsræktar. Mér finnst líka frábært að geta verið án gleraugna við akstur og í bíóferðum. Helsti ávinningurinn var líka að geta stundað skíðin án þess að vera alltaf með móðu innan í gleraugunum.

Launafulltrúi hjá Nóa Síríus.

Jófríður Halldórsdóttir

LASIK aðgerð 2006


Í byrjun árs 2002 hafði ég ástæðu til að láta endurskoða augu mín eftir aðgerð.Ég frétti af augnlæknastöðinni Sjónlagi. Eftir ítarlega skoðun og mælingar þar voru hornhimnur lagfærðar. Nú er ég mjög sátt við sjón mína eftir þá meðhöndlun, ásamt kerfisbundnu eftirliti.

Ég tel augnlæknastöðina Sjónlag í sérflokki.

Erla Garðarsdóttir

 

Fyrirbyggjandi aðgerðir eru bestar. Nauðsynlegur þáttur í heilbrigðiseftirliti er að láta fylgjast með sjón sinni ásamt ástandi augnanna. Þetta á ekki síst við þegar fólk er komið yfir miðjan aldur. Síðastliðin ár hef ég fengið þetta mikilvæga eftirlit hjá augnlæknastöðinni Sjónlagi.

Þjónustan er í einu orði sagt frábær.

Ágúst Karlsson

 

Eftir að hafa notað gleraugu í mörg ár ákvað ég að kanna möguleikann á að fara í sjónlagsaðgerð. Ég hafði samband við Sjónlag og ákvað að fara í aðgerð hjá þeim eftir að hafa farið í forskoðun. Starfsfólk Sjónlags var allt einstaklega vingjarnlegt og hjálpaðitil við að gera upplifunina eins auðvelda og hægt var. Bæði for- og eftirskoðanir voru ítarlegar og Ólafur útskýrði allt vandlega.

Ég get hiklaust mælt með Sjónlagi.

Páll Jónsson

 

Ég notaði gleraugu og linsur frá unga aldri en ákvað að nú væri kominn tími til að athuga með laser augnaðgerð. Þjónustan hjá Sjónlagi er sérstaklega fagmannleg en um leið persónuleg. Þau voru nákvæm og veittu ráðleggingar og studdu mig í gegnum allt ferlið, allt frá því að ég hafði fyrst samband við stofuna, þar til komið var að aðgerðinni og eftirskoðun. Eftir aðgerðina hafði ég nægan tíma til að njóta þess sem Ísland hefur upp á að bjóða.

Ég myndi eindregið mæla með Sjónlagi.

Roland Baskeyfield

 

Ég hafði alltaf ákveðna fordóma gagnvart laseraðgerðum á augum. Sennilega var það hræðslan við aðgerðina sem skapaði þessa fordóma. Ég stunda mikið íþróttir, m.a. sund, hlaup og hjólreiðar og með það í huga ákvað ég að panta tíma einn daginn þó án þess að ákveða að fara í aðgerð. Ég fullyrði að eftir skoðun var ég sannfærður og viku seinna fór ég í aðgerð. Aðgerðin ein og sér var ekkert mál og starfsfólk Sjónlags var alveg frábært í alla staði. Eftirköstin af aðgerðinni voru engin og aðgerðin sjálf hafði lítil áhrif á vinnu mína og daglegt líf. Ég get sagt með sanni að aðgerðin hafi svo sannarlega breytt lífi mínu og að vera laus við linsur og gleraugu er frábær tilfinning. Í dag líður mér eins og ég hafi aldrei notað linsur eða gleraugu og sjónin er fullkomin. Er hægt að fara fram á meira? Steinn Jóhannsson

Steinn Jóhannsson

Forstöðumaður kennslusviðs Háskóla Reykjavíkur

© 2009 Sjónlag  -  Glæsibær  -  Álfheimar 74  - 104 Reykjavík  -  Sími 577 1001 - Opið kl. 8:30-16:00 virka daga
Keyrir á Dísil frá Atómstöðinni