-A +A Sjónskert Veftré

Tækni


Sjónlag hf var stofnað á árinu 2001 og þá strax var unnið að framúrstefnulegri tækni fyrir augnlæknastöðina, sem frá upphafi var skipulögð sem alhliða augnlæknamiðstöð sem gæti rannsakað alla augnsjúkdóma og í tímans rás einnig meðhöndlað þá alla. Til þess að þetta mætti verða að veruleika varð að uppfylla nokkur mikilvæg skilyrði, einkum varðandi hæfni lækna og starfsfólks, hentugt húsnæði sem aðlaga mætti auknum kröfum og uppfæranlegum tækjabúnaði í fremstu röð. Frá upphafi hefur tæknistjóri fyrirtækisins séð um að þjónusta fyrirtækisins á tæknisviðinu sé ávallt í sérflokki.

Segja má að skilyrðin hafi verið mjög ströng strax í upphafi, enda algjörlega nauðsynlegt.

Starfsemi Sjónlags hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt síðan frá árinu 2001. Laseraðgerðir skipuðu skjótt mikilvægan sess og var engu til sparað að auka nákvæmni og öryggi þeirra aðgerða strax frá upphafi.

Á árinu 2005 var bætt við miklum nýjum tækjabúnaði og augnskurðstofa sett upp með öllum tilheyrandi búnaði til að geta tekið við verkefnum frá spítölum þegar að því kæmi.

Lengi var unnið að því að fá heilbrigðisráðuneytið til að hefjast handa með því að úthýsa augasteinsaðgerðum þar sem biðlistar voru og eru langir, út af Landspítalanum.

Á árinu 2008 samdi Heilbrigðisráðherra, eftir útboðsferli, við Sjónlag hf um að gera 800 venjulegar augasteinsaðgerðir á tveimur árum og hófust þær aðgerðir í júní 2008 og hafa þær gengið frábærlega vel.

Áður hafði fyrirtækið hafið svokallaðar ICL aðgerðir en þar er um að ræða aðgerðir þar sem linsu er komið fyrir aftan við lithimnu augans, en framan við hinn náttúrulega augastein. Þessar linsur geta verið einfókus, fjölfókus, og eða fjölfókus- sjónskekkjuleiðréttingarlinsur.

Nú hefur Sjónlag hf einnig hafið svokallaðar CLE augasteinsaðgerðir, þar sem í stað hins náttúrulega augasteins eru settar fjölfókus, fjölfókus- sjónskekkjuleiðréttingar eða einungis sjónskekkjuleiðréttingarlinsur.

Til þess að geta framkvæmt aðgerðir á hinum ýmsu sviðum augnlækninga þarf mikinn tæknibúnað og er hann allur til staðar hjá Sjónlagi hf.

Hér á eftir birtist gróf yfirlitsmynd yfir tæki og hugbúnað hjá Sjónlagi, en fyrirtækið er hið eina á Íslandi þar sem öll gögn varðandi sjúklinga og rannsóknir sem gerðar eru á þeim eru eingöngu geymd í gagnagrunnum og mæligögn flytjast sjálfkrafa frá mælitækjunum inn í viðeigandi gagnagrunn.

Um er að ræða fimm mismunandi gagnagrunna sem allir eru fléttaðir saman. Gagnagrunnarnir eru fyrir íslenska sjúkraskrárforritið SÖGU, NAVIS (Nidek Advanced Vision Information System), Peridata sem höndlar sjónsviðsupplýsingar hjá glákusjúklingum, WinStation 5000 sem höndlar augnbotnamyndir og OCT sem höndlar sneiðmyndir af augnbotni.

Fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér málið frekar, fylgir hér heildaryfirlit yfir allan tæknibúnað Sjónlags hf, með tilvísunarhlekkjum, þar sem hægt er að skoða upplýsingar um hvert einstakt tæki inni á vefsíðum viðkomandi framleiðenda.

Hér á eftir er fjallað nokkuð um hinar ýmsu aðgerðir sem framkvæmdar eru hjá Sjónlagi hf.

Laseraðgerðir

Við bjóðum upp á nýjustu tækni við sjónlagsaðgerðir með lasertæki er kallast EC 5000 frá NIDEK, sem er eitt virtasta fyrirtæki á þessu sviði í heiminum. Fjöldi þekktra augnlækna á sviði sjónlagsaðgerða nota þetta tæki, og má sem dæmi nefna:

Howard Gimbel, Kanada (frumkvöðull á þessu sviði þar í landi)
Douglas Koch, Texas, Bandaríkjunum (Formaður amerísku augnlæknasamtakanna)
George Waring, Georgíu, Bandaríkjunum (Formaður Alþjóðasamtaka sjónlagsaðgerðasérfræðinga)
Paolo Vinciguerra, Ítalíu (Frumkvöðull í sjónlagsaðgerðum á Ítalíu og upphafsmaður LASEK, sem er ný LASIK-tækni)
Arturo Chayet, Argentínu (Frumkvöðull á þessu sviði í heimalandi sínu)

Fullyrða má að NIDEK sé eitt af bestu og þekktustu lasertækjum í heimi í dag. Því miður hafa fáar beinar samanburðarrannsóknir verið framkvæmdar á tækjum þeim sem eru á markaðnum en þó eru nokkrar rannsóknir sem benda til mjög góðs árangurs NIDEK fram yfir nokkur önnur tæki sem eru notuð til slíkra aðgerða.

NIDEK EC 5000 beitir lasertækni sem kallast "scanning slit beam technology" við LASIK og PRK. Lasergeislinn er þá í formi svokallaðs "raufargeisla" (slit beam), þ.e. geislinn er striklaga og er "skannaður" yfir hornhimnuna eftir að búið er að forrita tölvu lasertækisins. Árangur aðgerða með NIDEK EC-5000 lasertækinu þykir með því albesta sem gerist og sýndi nýleg rannsókn fram á að hefðbundin aðgerð með NIDEK skilaði jafnvel betri árangri en fjórðukynslóðarmeðferð með Alcon Ladarvision og VISX lasertækjunum. Sjá: NIDEK vs Alcon og VISX.pdf

Einn af meginkostum NIDEK EC-5000 lasertækisins er bygging þess. Tækið er hluttengt, eða "modular", sem veldur því m.a. að sérstaklega auðvelt er að skipta um hluti þess og endurnýja án þess að þurfa að skipta um tæki. Þetta hefur þegar komið sér vel og verður til þess að tækið verður ávallt í fararbroddi hvað gæði varðar og í raun sem nýtt. Til viðbótar höfum við tileinkað okkur svokallaða sjöttukynslóðartækni. Hún byggir á því að lasermeðferðin er "klæðskerasaumuð" fyrir hornhimnu hvers og eins, þannig að hornhimnan verði sem flötust og myndin því sem skörpust. Þessi tækni er ný af nálinni og verður spennandi að fylgjast með framtíðarþróun á þessu sviði.

Sumir telja að í framtíðinni sjái maðurinn betur en nokkru sinni áður og hefur slík sjón gjarnan verið kölluð "ofursjón" eða "super vision". Óvíst er þó hvort slíkt takist. Sjöttukynslóðartæknin hefur reynst vel hjá þeim sem hafa óreglulegt hornhimnuyfirborð, s.s. eftir hornhimnusjúkdóma, áverka eða eftir aðgerðir.

Flipavélin okkar kallast Amadeus og er frá hinu virta fyrirtæki AMO. Tæki þetta útbýr þunnan flipa (0.12 mm) og er lasermeðferðinni síðan beitt á beðinn undir honum.

Við kappkostum að tækniþjónusta sé sú besta sem völ er á og fylgjumst grannt með öllum þeim nýjungum sem koma fram á þessu ört vaxandi sviði augnlæknisfræðinnar.

Nokkuð hefur verið rætt undanfarið um öryggi þessara aðgerða. Miklu skiptir að sá sem sjónlagsaðgerðirnar framkvæmir hafi gott nám og reynslu að baki og einnig skiptir miklu máli að tækjakosturinn sé góður. Þrátt fyrir þetta er ekkert algjörlega fyrirsjáanlegt eða 100% öruggt - þetta vitum við öll. Við kappkostum hins vegar að bjóða upp á þjónustu sem er til jafns við það besta sem gerist erlendis og felst hluti af þessari þjónustu í að vera til taks allan sólarhringinn til að geta brugðist fljótt og vel við ef eitthvað kemur upp á.

Hornhimnuskoðanir

Augnbotnaskoðanir OCT eða Optical Coherence Tomography er ný rannsóknaraðferð sem beitt er við sjúkdómum í augnbotnum. Rannóknin er einskonar ómskoðun nema hvað hér er notast við ljósbylgjur í stað hljóðbylgja. Þetta er sársaukalaus rannsókn og krefst engra skuggaefna. Útkoman er svo þversneiðsmynd af augnbotni sem auðveldar greiningu sjúkdóma þar og eftirfylgni sjúkdóma. Það er sérlega gott við greiningu á bjúg í miðgróf ss við sykursýki eða ellihrörnun. Ómissandi við greiningu á makulagati og fíbrósu á miðgrófarsvæði. Þessi rannsóknartækni er ein af forsendum þess að geta fylgt eftir sjúklingum með ellihrörnun í augnbotnum sem fá lyf inn í glerhlaupið.

Tækið sem við notum heitir Stratus OCT er frá Carl Zeiss sem hafa verið í fararbroddi í þróun þessarar tækni í mörg ár. NIDEK MP-1 - Miðgrófar sjónsviðstæki og augnbotnamyndavél er notuð við mat á starfsemi miðgrófar og er mikilvæg viðbót við þær upplýsingar sem OCT gefur. Þannig má meta á mjög nákvæman hátt útbreiðslu skemmda í miðgróf við bæði sykursýki og ellihrörnun. Þetta tæki hefur verið mikið notað við þjálfun sjónskertra og veitir mikla aðstoð við mátun ýmissa hjálpartækja.

Zeiss augnbotnamyndavél með Winstation hugbúnaði er notuð við myndatökur af augnbotnum 
© 2009 Sjónlag  -  Glæsibær  -  Álfheimar 74  - 104 Reykjavík  -  Sími 577 1001 - Opið kl. 8:30-16:00 virka daga
Keyrir á Dísil frá Atómstöðinni