26.3.2009
Þetta eru sannarlega góðar fréttir fyrir okkur í Sjónlagi
Loksins er komin fram rannsókn sem ber saman árangur þeirra tveggja
lasertækja sem notuð eru hér á landi í dag, NIDEK EC 5000 - sem er það
lasertæki sem Sjónlag notar, og Bausch & Lomb Technolas 117.
Rannsóknin birtist í hinu virta breska læknatímariti "Eye". Í
rannsókninni kemur fram að góð útkoma hafi fengist hjá 13% fleiri
einstaklingum sem gengust undir aðgerð með NIDEK lasertækinu en með
Bausch & Lomb lasertækinu. Þetta eru sannarlega góðar fréttir
fyrir okkur í Sjónlagi þar sem samanburðarrannsóknir af þessu tagi hafa
verið af skornum skammti. Þetta styrkir okkur í þeirri skoðun að við
séum að bjóða upp á bestu mögulegu þjónustu á þessu sviði hér á landi.
Nánar má sjá um rannsóknina á eftirfarandi slóð:
http://www.nature.com/eye/journal/v22/n9/abs/6702856a.html